Tvö skip fá túnfiskkvóta Íslands

2. september 2010, 15:00 -  Tvö skip sóttu um að veiða túnfiskkvóta Íslendinga í ár og fengu honum úthlutað. Um er að ræða 30 tonn af túnfiski og skiptist hann jafnt á milli skipanna. Ekki liggur þó endanlega fyrir hvort af þessum veiðum verði í ár, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum sem fylgja Viðskiptablaðinu í dag. Skipin sem hér um ræðir eru Jón Gunnlaugs ÁR og Guðrún Guðleifsdóttir ÍS. Útgerðarmaður Jóns Gunnlaugs ÁR segir í samtali við Fiskifréttir að stefnt sé að því að veiða túnfiskinn djúpt suður af landinu samhliða lúðuveiðum. Ef af verður hefjast veiðarnar um miðjan september.

Fimm útgerđir međ 33% heildarkvótans

2. september 2010, 11:41 - Þriðjungur aflaheimilda á Íslandsmiðum er í höndum fimm útgerða í upphafi nýs fiskveiðiárs og tíu fyrirtæki ráða yfir helmingi kvótans. Þetta kemur fram í nýjustu Fiskifréttum. Litlar breytingar eru á hlut stærstu útgerðanna í heildarkvótanum frá fyrra ári.

Miđvikudagur

Jafnvel makríllinn teystir ekki ESB!

1. september 2010, 15:42 - Makrílveiðar Íslendinga vekja mikla athygli og umræðu erlendis. Flestir gagnrýna þessar veiðar að vísu en nú síðast fengu Íslendingar stuðning frá Søren Søndergaard sem er Evrópuþingmaður fyrir samtök í Danmörku sem berjast gegn aðild landsins að ESB.

Kolmunninn í frjálsu falli?

1. september 2010, 14:11 - Illa horfir með kolmunnastofninn ef ekki koma sterkir árgangar inn í hann í nánustu framtíð. Hrygningarstofninn hefur minnkað úr sjö milljónum tonna í þrjár milljónir síðan árið 2004. Þetta kemur fram í greinargerð sérfræðings norsku hafrannsóknastofnunarinnar.

LÍÚ: Ólöglegt ađ gefa rćkjuveiđar frjálsar

1. september 2010, 10:38 - Sú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju á komandi fiskveiðiári er ólögleg samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið hefur verið fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna og ráðuneytinu hefur verið kynnt. Í álitinu segir m.a.

Ţriđjudagur

Dauđaleit ađ neyđarsendi sem fannst svo í ruslagámi

31. ágúst 2010, 17:35 - Mikil leit að neyðarsendi stóð yfir hjá Landhelgisgæslunni og samstarfsaðilum frá sunnudegi og fram á mánudag eftir að neyðarskeyti hófu að berast frá neyðarsendi sem ekki var lengur í notkun.

22 sóttu um stöđu fiskistofustjóra

31. ágúst 2010, 17:01 - Þann 27. ágúst síðastliðinn rann út frestur til að skila umsóknum um embætti fiskistofustjóra en staðan var auglýst laus eftir að Árni Múli Jónasson, sem staðið hefur stutt við í embættinu, var ráðinn bæjarstjóri Akraness.

Verđ á sjávarafurđum í erlendri mynt mjakast upp

31. ágúst 2010, 14:30 - Verð á íslenskum sjávarafurðum (meðaltal allra afurðaflokka) mælt í erlendri mynt hækkaði um 1,5% í júlí síðastliðnum. Þetta byggir á útreikningi IFS greiningar miðað við tölur um framleiðsluverð í júlí sem Hagstofan birti fyrir helgi.

Fćreyski ráđherrann harmar ađ hafa ekki ákveđiđ stćrri makrílkvóta

31. ágúst 2010, 12:00 - Færeyski sjávarútvegsráðherrann, Jacob Vestergaard, segir í grein sem hann ritar í færeysk blöð að honum þyki miður að hafa ekki getað aukið makrílkvóta Færeyinga upp í 150.

Aflaverđmćti eykst um ţriđjung

31. ágúst 2010, 09:21 - Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 57 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2010 samanborið við 43 milljarð á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 14 milljarða eða rúmlega 32% á milli ára, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Mánudagur

Talsmenn skoskra makrílveiđimanna: Sćta sjálfir ákćru fyrir ólöglegar veiđar

30. ágúst 2010, 15:10 - Sex útgerðir á Hjaltlandseyjum eiga það yfir höfði sér að þurfa að greiða himinháar sektir og sæta auk þess eignaupptöku að verðmæti margra milljóna punda vegna ólöglegrar löndunar á síld og makríl að verðmæti 15 milljónir GBP, eða sem nemur 2,8 milljörðum ISK.

Rúmlega helmingur makrílaflans til manneldis

30. ágúst 2010, 11:57 - Mun meiri áhersla hefur verið lögð á að landa makríl til manneldis í sumar en í fyrrasumar. Fiskistofa fylgist með skiptingu aflans eftir vinnsluaðferðum. Af liðlega 83 þúsund tonna afla, sem flokkaður hafði verið í síðustu viku eftir ráðstöfun, höfðu 53% farið í manneldisvinnslu en 47% í...

Sunnudagur

Gjaldţrot blasir viđ pangasius-bćndum

29. ágúst 2010, 11:11 - Fjöldi fiskeldisbænda á Mekong-svæðinu í Víetnam er nærri gjaldþrota þrátt fyrir vaxandi útflutning vegna þess að þeir selja eldisfiskinn pangasius undir kostnaðarverði.

Laugardagur

28 skip fóru yfir milljarđinn

28. ágúst 2010, 14:24 - Frystitogarinn Brimnes RE skilaði mestu aflaverðmæti botnfisktogara á árinu 2009 eða 1.735 milljónum króna (fob). Sólbakur EA var eini ísfisktogarinn sem komst yfir milljarðinn en aflaverðmæti hans nam tæpum 1,1 milljarði. Bæði þessi skip eru í eigu Brims hf.

Föstudagur

Veiđar á beitukóngi ađ hefjast á ný

27. ágúst 2010, 14:47 - Veiðar á beitukóngi eru að hefjast á ný eftir nokkuð langt hlé að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. Ásgeir Valdimarsson, útgerðarmaður Garps SH, segir að beitukóngsgildrur hafi verið lagðar nú í vikunni.

Vilhelm áfram á toppnum

27. ágúst 2010, 11:59 - Þrjú uppsjávarveiðiskip fiskuðu fyrir tvo milljarða eða meira hvert um sig á árinu 2009. Heildaraflaverðmæti uppsjávarflotans var nánast hið sama og árið á undan þrátt fyrir 20% samdrátt í afla.

Fimmtudagur

Blíđari móttökur á Fáskrúđsfirđi

26. ágúst 2010, 16:20 - Færeyska skipið Jupiter sem komst í heimsfréttirnar á dögunum þegar það lenti í hremmingum í Skotlandi vegna makrílstríðsins er eitt þeirra færeysku skipa sem landar gjarnan afla sínum á Fáskrúðsfirði.

Smábátaeigendur: Keyptu kvóta fyrir á fjórđa tug milljarđa á tveimur árum

26. ágúst 2010, 11:59 - Smábátaeigendur keyptu kvóta fyrir á fjórða tug milljarða króna á tveimur fiskveiðiárum, á árunum 2005-2007, að mati Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Þetta kemur fram í Fiskifréttum sem fylgja Viðskiptablaðinu í dag.

Miđvikudagur

Fćreyingar eru ekki skúrkarnir

25. ágúst 2010, 13:14 - Norðmenn og ESB ofveiða makríl í tvöfalt meira mæli en Færeyingar á þessu ári. Þar af leiðandi sætta Færeyingar sig ekki við að vera úthrópaðir sem skúrkarnir í þessum veiðiskap.

Ţriđjudagur

Perú: Verđhćkkanir á fiskmjöli örva útflutning

24. ágúst 2010, 15:00 - Samtök fiskframleiðenda í Perú (SNP) spá því að útflutningur á fiskmjöli frá Perú muni aukast á þessu ári en hann nam rúmum 1.400 milljónum USD (170 milljörðum ISK) árið 2009.

Fćreyski sjávarútvegsráđherrann mótmćlir

24. ágúst 2010, 12:00 - Sjávarútvegsráðherra Færeyja, Jörgen Niclasen, hefur sent skoskum stjórnvöldum harðorð mótmæli vegna þess að skoskir sjómenn komu í veg fyrir það í síðustu viku að færeyski togarinn Jupiter gæti landað 1.150 tonna makrílfarmi í Peterhead í Skotlandi.

Síldveiđin ađ fćrast yfir í Síldarsmuguna

24. ágúst 2010, 09:15 - Ljóst virðist að norsk-íslenska síldin er nú í auknum mæli að ganga úr íslenskri lögsögu norðaustur í Síldarsmuguna og lengst hafa skipin orðið að sækja aflann um 270 sjómílur ANA af Vopnafirði.

Mánudagur

Lýsi gćti dregiđ úr ţunglyndi hjá strákum

23. ágúst 2010, 15:00 - Með því að borða meira af feitum fiski, svo sem sardínum og laxi að ekki sé talað um lýsi, geta strákar á táningsaldri dregið úr hættunni að þjást af depurð og þunglyndi, að því er fram kemur í nýlegum rannsóknum í Japan.

MSC hótar ađ draga makrílvottun til baka

23. ágúst 2010, 11:58 - Vottunarfyrirtækið Marine Stewardship Council (MSC) hefur hótað að draga umhverfisvottun sína á makrílveiðum til baka ef ekki næst samkomulag um nýtingu makrílstofnsins fyrir lok næsta árs. Um er að ræða vottun á makrílveiðum Norðmanna, Skota, Hollendinga, Dana og Íra.

Sunnudagur

Norđurskel í Hrísey: Framleiđslan fimmfaldast

22. ágúst 2010, 10:52 - Framleiðsla Norðurskeljar í Hrísey mun að öllum líkindum fimmfaldast frá því sem var á síðasta ári og verður um 150 tonn í ár, að því er fram kemur í viðtali við Víði Björnsson, framkvæmdastjóra Norðurskeljar, í nýjustu Fiskifréttum.

Laugardagur

Stćrsti túnfiskur í aldarfjórđung

21. ágúst 2010, 14:33 - Nýlega var risastór túnfiskur boðinn til sölu á Tsukiji fiskmarkaðinum í Tókío í Japan. Hann vó 445 kíló óslægður og reyndist vera þyngsti túnfiskurinn sem þar hefur verið seldur síðustu 25 árin. Fiskurinn var sleginn á jafnvirði 4,4 milljóna íslenskra króna.

Föstudagur

Fćreyjahryggur: Dregur verulega úr veiđi á ,,íslenska ţorskinum"

20. ágúst 2010, 15:00 - Þorskur sem Færeyingar veiða á Færeyjahrygg telst til íslenska þorskstofnsins. Veiðin þar fer minnkandi en undanfarin áratug hefur ,,íslenski þorskurinn" numið frá 1,6% upp í rúm 42% af öllum þorskafla Færeyinga á færeyska landgrunninu, að því er fram kemur í nýjustu...

Jupiter tapađi 100 milljónum á ađgerđum skoskra sjómanna

20. ágúst 2010, 12:13 - Færeyski togarinn Jupiter tapaði jafnvirði 100 milljóna íslenskra króna vegna aðgerða skoskra sjómanna í Peterhead síðastliðinn miðvikudag, en þeir komu í veg fyrir löndun úr skipinu vegna makríldeilunnar við Færeyinga. Jupiter átti að landa 1.

Fimmtudagur

8% ţorskkvótans fara í sérúthlutanir

19. ágúst 2010, 16:21 - Um 8% af leyfilegum heildarafla í þorski á næsta fiskveiðiári koma ekki til skipta samkvæmt aflahlutdeild. Verður þeim ráðstafað með sérúthlutun. Munar þar mestu um 4.800 tonn af þorski sem tekin hafa verið frá til strandveiða.

Geymsluréttur í ýsu og humri aukinn

19. ágúst 2010, 15:14 - Sjávarútvegsráðherra hefur með nýrri reglugerð heimilað að 15% af aflamarki ýsu og humars verði flutt frá fiskveiðiárinu 2009/2010 yfir á fiskveiðiárið 2010/2011. Hér áður fyrr voru heimildir til tilfærslna, þ.e. að flytja kvóta á milli fiskveiðiára, mun ríflegri en nú er.

 
Viđskiptablađiđ ˇ Myllusetur ehf ˇ Fiskislóđ 22 ˇ 101 Reykjavík ˇ Sími: 511-6622 ˇ vb@vb.is ˇ askrift@vb.is ˇ RSS