10-11 er dýrasta verslunin samkvæmt verðkönnun á matvöru sem verðlagseftirlit ASÍ gerði 3. júní síðastliðinn. Frá þessu er greint á vef ASÍ .

Samkaup strax og Krambúðin eru næst dýrastar af þeim ellefu verslunum sem verð var kannað hjá. Super 1 skipar sér í hóp lágvöruverðsverslana með verð sem eru í mörgum tilfellum svipuð og í Bónus og Krónunni en hærri í ákveðnum tilvikum.

Í 62 tilfellum af 106 var yfir 81% munur á hæsta og lægsta verði en í 45 af 106 tilfellum var yfir 100% verðmunur. Hæsta verðið var oftast í 10-11 en það lægsta oftast í Bónus.

Iceland og Hagkaup eru dýrustu verslanirnar að minni hverfisverslunum undanskildum (10-11, Samkaup strax og Krambúðinni) en Iceland er aðeins oftar með hærri verð en Hagkaup í þessari könnun.