Heildarafli íslenska flotans þegar fiskveiðiárið 2016 til 2017 var hálfnað, þ.e. frá 1. september 2016 til loka febrúar 2017, nam tæpum 425 þúsund tonnum upp úr sjó. Til samanburðar var aflinn á sama tímabili í fyrra 472 þúsund tonn. Þetta er samdráttur í heildarafla sem nemur um 10%, eða um 48 þúsund tonnum. Meginskýringin á þessu er sjómannaverkfallið sem stóð í um 8 vikur. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.

Á fyrri helmingi yfirstandandi fiskveiðiárs veiddu íslensk skip tæplega 31 þúsund tonni minna af þorski upp úr sjó en á fyrra ári. Samdráttur í ýsuafla var um 7,5 þúsund tonn. Heildaraflinn í botnfiski er á fyrra helmingi fiskveiðiársins tæp 176 þúsund tonn upp úr sjó samanborið við 240 þúsund tonn á sama tímabili í fyrra. Þetta er samdráttur upp á 27%.

Á fyrri helmingi fiskveiðiársins nam uppsjávarafli íslenskra skipa 246 þúsund  tonnum. Það er tæplega 20 tonnum meiri afli en á sama tímabili á síðasta fiskveiðiári. Milli ára varð talsverð aukning í makríl og loðnu en samdráttur í kolmunna.

Afli íslenskra skipa í skel- og krabbadýrum á fyrra helmingi fiskveiðiársins er 1.166 tonnum minni en á fyrra ári sem samsvarar um 29% samdrætti. Meira en helmingssamdráttur varð í humri og rækju en afli í sæbjúgum jókst.