Icelandair flutti 14.500 farþega í síðasta mánuði, sem er 95% fækkun milli ára, en tvöföldun milli mánaða. Heildarfjöldi farþega á síðsta ári nam 763 þúsund og fól í sér 83% samdrátt milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Sætaframboð flugfélagsins dróst saman um 92% í desembermánuði, en „eins og gefur að skilja hafði COVID-19 faraldurinn umtalsverð áhrif á starfsemi Icelandair á nýliðnu ári“.

Innanlandsflugið dróst öllu minna saman. Farþegar Air Iceland Connect voru 10.200 talsins í desember og fækkaði um 43% milli ára. Yfir árið námu þeir 128 þúsund og féllu um 55%.

Loks drógust blokktímar í leiguflugi saman um 70% milli ára í desember, en 53% fyrir árið í heild. Fraktflutningar voru sambærilegir við árið áður fyrir mánuðinn, en drógust saman um 14% fyrir árið.

„Það er hlutverk okkar að tryggja góðar samgöngur til og frá Íslandi og það á ekki síst við á þessum mikilvæga árstíma. Við fundum fyrir auknum áhuga á flugi yfir hátíðirnar, fyrst og fremst frá Íslendingum sem vildu komast heim, sem við mættum með aukinni tíðni og fjölgun áfangastaða frá því sem verið hefur að undanförnu. Flutningatölur félagsins fyrir árið í heild endurspeglast af þeim aðstæðum sem ríkt hafa í alþjóðaflugi á nýliðnu ári, þar sem farþegaflug hefur verið í lágmarki.

Fraktflutningar okkar hafa hins vegar gengið vel á árinu. Þar tókst okkur að skapa ný verkefni, svo sem með flutningi á lækningavörum frá Kína til Evrópu og Norður Ameríku og auknum umsvifum í fraktflutningum á Norður Atlantshafinu. Þá var ánægjulegt að geta aukið farþegaflug með skömmum fyrirvara, fyrst í sumar og nú aftur um jólin. Þrátt fyrir að talsverð óvissa sé framundan erum vel undirbúin til að takast á við þær áskoranir og grípa þau tækifæri sem nýtt ár færir okkur,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair í tilkynningunni.