Félagið Suzuki-bílar hf. hagnaðist um 197 milljónir króna á síðasta rekstrarári, samanborið við 282 milljóna króna hagnað árið áður. Rekstrartekjur félagsins námu tæplega 2,3 milljörðum króna og eignir námu rúmlega 2,1 milljörðum króna.

Eigið fé félagsins nam 1,6 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall var því 76% í árslok 2017.  Úlfar Hinriksson er stærsti hluthafi félagsins með 54% hlut í sinni eigu, en hann er jafnframt framkvæmdastjóri félagsins.