Á fjórða ársfjórðungi 2018 var tæplega 300 milljóna króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Halli á vöruskiptajöfnuði var 37 milljarðar króna en afgangur á þjónustujöfnuði var 33,4 milljarðar króna. Frumþáttatekjur skiluðu 10,1 milljarða króna afgangi en rekstrarframlög 6,3 milljarða króna halla.

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2018 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.386 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.110 milljörðum króna. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 276 milljarða króna eða 9,9% af vergri landsframleiðslu (VLF) og versnaði um 77 milljarða króna eða 2,8% af VLF á fjórðungnum. Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 41 milljarða króna á fjórðungnum. Erlendar eignir jukust um 13 milljarða króna vegna fjármagnsviðskipta en skuldir lækkuðu um 28 milljarða króna. Gengis- og verðbreytingar höfðu neikvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 78 milljarða króna. Skýrist það aðallega af tæplega 13% verðlækkunum á erlendum verðbréfamörkuðum á ársfjórðungnum. Aftur á móti var rúmlega 3% lækkun á gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog.