Á fyrsta ársfjórðungi 2019 var 35,1 milljarða króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 3,5 ma.kr. en afgangur á þjónustujöfnuði var 29,7 ma.kr. Frumþáttatekjur skiluðu 8,5 ma.kr. afgangi en rekstrarframlög 6,7 ma.kr. halla.

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fyrsta ársfjórðungi 2019 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.746 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.149 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 597 ma.kr. eða 21% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 270 ma.kr. eða 9,5% af VLF á fjórðungnum. Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 98 ma.kr. á fjórðungnum. Erlendar eignir jukust um 59 ma.kr. vegna fjár­magnsviðskipta en skuldir lækkuðu um 39 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar höfðu jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 182 ma.kr. Það skýrist aðallega af tæplega 12% verðhækkunum á erlendum verðbréfamörkuðum á ársfjórðungnum en einnig rúmlega 4,5% lækkun á gengi krón­unnar gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog.