Í októbermánuði voru 7.400 manns atvinnulausir, eða 3,6% af vinnuaflinu, en það er lækkun um 0,1 prósentustig frá því í september að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Er þá miðað við árstíðarleiðréttar tölur, en miðað við þær var atvinnuþátttakan 82,0%, sem er 0,5 prósentustigi hærra en i september, meðan hlutfall starfandi fólks var 78,3% miðað við sama mælikvarða.

Þegar horft er til síðustu sex mánaða, bendir leitni árstíðarleiðréttra talna til að atvinnuþátttaka hafa verið nokkuð stöðug þótt hlutfall hennar hafi lækkað lítillega, eða um 0,2 prósentustig. Þrátt fyrir að hlutfall starfandi sé enn nokkuð lægra, eða 0,7 prósentustigum lægra en fyrir hálfu ári síðan, þá hefur hlutfallið farið hækkandi síðan í ágúst 2019. Árstíðarleiðrétt leitni atvinnuleysis heldur áfram að vera stöðug, þótt hún hafi stigið lítillega frá því í maí, eða um 0,2 prósentustig.

Vinnuaflið aukist um nærri 5000 manns milli ára

Samkvæmt óleiðréttum mælingum er áætlað að um 209.500 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í október 2019. Það jafngildir 81,3% (±2,4) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 202.200 (±5.800) vera starfandi og 7.400 (±1.200) án vinnu og í atvinnuleit.

Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,4% (±2,9) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,5% (±1,2). Óleiðréttar mælingar benda þannig til þess að litlar breytingar séu á hlutfall starfandi af mannfjölda í október milli ára þó starfandi hafi fjölgað töluvert eða um 3.500 manns.

Samanburður óleiðréttra mælinga fyrir október 2018 og 2019 bendir einnig til þess að vinnuaflið hafi aukist um 4.800 manns þó að hlutfall þess af mannfjölda hafi dregist saman um hálft prósentustig. Þá eru ívið fleiri áætlaðir utan vinnumarkaðar í október 2019, eða um 48.300 (±3.000), sem er aukning um nær 1.000 manns milli ára. Að lokum sýna óleiðréttar mælingar örlitla hækkun á hlutfalli atvinnulausra frá því í október 2018 eða um 0,6 prósentustig.