TD Ameritrade Holding Corp tilkynnti í dag fyrirhugaða yfitöku á Scottrade Financial Services. Um er að ræða 4 milljarða dala yfirtöku samkvæmt fréttatilkynningu frá TD Ameritrade .

Yfirtakan mun eiga sér stað í tveimur skrefum. Fyrst mun TD Bank Group greiða 1,3 milljarða Bandaríkjadala fyrir bankastarfsemi Scottrade. Þegar öllum sameiningum á sviði bankastarfsemi er lokið, mun TD Ameritrade greiða 2,7 milljarða dala fyrir alla aðra starfsemi Scottrade.

Fyrirtækin sérhæfa sig bæði í miðlun, fjárfestingarráðgjöf og eignastýringu. Árið 2015 skilaði Scottrade 1,1 milljarði dala í tekjur.