Sala nýrra fólksbíla í september jókst um 41,8% miðað við september í fyrra, en alls voru skráðir 1014 nýir fólksbílar nú en voru 715 í fyrra. Sala nýrra bíla hefur þó í heildina dregist saman um 26,1% á fyrstu 9 mánuðum ársins borið saman við sama tímabil í fyrra, þar sem 7268 nýir fólksbílar hafa selst í ár en voru 9838 í fyrra, en það liggja eðlilegar ástæður þar að baki þegar rýnt er í tölurnar. Bílgreinasambandið greinir frá þessu í tilkynningu.

„Einstaklingar hafa verið iðnir við bílakaup á árinu því til þeirra hafa selst 4021 nýir fólksbílar það sem af er ári og er það aukning upp á 3,0% miðað við sama tíma í fyrra þegar selst höfðu 3904 bílar til einstaklinga. Þessi hluti markaðarins hefur því verið með miklum ágætum. Þá hafa almenn fyrirtæki (önnur en bílaleigur) keypt 1461 bíl í ár miðað við 1590 bíla í fyrra, eða einungis 8,1% færri bíla en í fyrra. Það er því ljóst að samdráttinn í heildarsölunni það sem af er ári má fyrst og fremst rekja til færri seldra bíla til ferðaþjónustunnar og er það skiljanlegt í ljósi aðstæðna,“ segir í tilkynningunni.

Að sögn Bílgreinasambandsins hefur þessi góða sala til einstaklinga einnig verið til staðar á notaða bílamarkaðnum því umfang hans það sem af er ári hafi verið meira en í fyrra. Því sé ljóst að einstaklingar hafi ekki látið ástandið vegna kórónuveirunnar letja sig of mikið þegar kemur að bílakaupum.

Þá segir Bílgreinasambandið að nýorkubílar (rafmagns, tengiltvinn, hybrid, metan) standi ennþá fyrir stórum hluta af öllum seldum nýjum bílum á þessu ári. Bæði einstaklingar og fyrirtæki sæki í auknum mæli í slíka bíla en framboð þeirra sé jafnframt alltaf að aukast og því orðið auðveldara að finna bíla sem henta þörfum hvers og eins. Það sem af er ári séu nýorkubílar 66,7% allra nýrra bíla sem einstaklingar hafa keypt (rafmagn 31,4%, tengiltvinn 21,1%, hybrid 13,5% og metan 0,7%) en þetta hlutfall var 42,2% á sama tíma á síðasta ári. Svipaða sögu sé að segja af almennum fyrirtækjum (fyrirtæki önnur en bílaleigur) en þar sé hlutfallið 58,9% nú miðað við 38,9% á sama tíma í fyrra.