Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi mældist 4,2% í nóvember 2021 sem er lækkun um 1,2 prósentustig frá fyrri mánuði, en þetta kemur fram í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka mældist 80,1% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 76,7% og jókst hlutfallið um 1,2 prósentustig.

Í tilkynningu á vef Hagstofu segir að árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis hafi haldist stöðug síðustu þrjá mánuði í 5,1% en dregist saman um 0,7 prósentustig síðustu sex mánuði frá júní 2021 og að árstíðaleiðrétt leitni hlutfalls starfandi hafi aukist um 1,9 prósentustig síðustu sex mánuði.

Þá segir að samkvæmt mælingu án árstíðaleiðréttingar, sé áætlað að 210.200 (±7.900) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára hafi verið á vinnumarkaði í nóvember 2021 sem jafngildi 78,7% (±2,9) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu hafi 203.100 (±5.600) verið starfandi og 7.100 (±2.700) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda mældist þannig 76,0% (±2,8) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 3,4% (±1,3) og starfandi unnu að jafnaði 35,3 (±1,3) stundir á viku í nóvember 2021. Fram kemur að samanburður við nóvember 2020 sýni að atvinnuleysi hafi dregist saman um 3,8 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi aukist um 5,8 prósentustig.

Slaki á vinnumarkaði 12%

Áætlað er að 26.300 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í mánuðinum sem jafngildir 12% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 27% atvinnulausir, 25,3% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 6,2% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 41,4% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira).

Samanburður við sama tíma á síðasta ári sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað um 4,3 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur haldist stöðug síðustu sex mánuði.

Atvinnuleysi ungs fólks lágt

Atvinnuleysi ungs fólks á aldrinum 16-24 ára mældist 4,1% í nóvember 2021 í rannsókninni en áætlað er að 1.200 einstaklingar hafi verið atvinnulausir í þessum hóp og 11.400 utan vinnumarkaðar.

Fram kemur að samanburður við síðustu ár sýni að atvinnuleysi í hópi ungs fólks hafi aldrei mæst lægra í nóvembermánuði frá upphafi samfelldrar vinnumarkaðsrannsóknar 2003. Atvinnuleysi ungs fólks dróst saman um 5 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi jókst um 14,2 prósentustig.