Samkvæmt nýjum Þjóðarpúls Gallup breytist fylgi stjórnmálaflokka lítið milli mánaða, eða um 0,2-1,9 prósentustig. Tæplega 24% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Liðlega 16% segjast myndu kjósa Samfylkinguna, ríflega 12% Miðflokkinn, 12% Vinstri græn, rúmlega 11% Viðreisn, nær 10% Pírata, næstum 8% Framsóknarflokkinn, rösklega 4% Flokk fólksins og næstum 3% Sósíalistaflokk Íslands.

Nær 12% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa og næstum 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp. Tæplega 51% þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkisstjórnina.