Hlutfall bóka sem prentaðar eru innanlands hefur aukist. ÞBókasamband Íslands hefur kannað prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2019.

Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands eru 145 og fjölgar um 21 frá fyrra ári og sem hlutfall af heild eykst hún milli ára um 1,5%, er 21,7% í ár en árið 2018 var hlutfallið 20,2% á prentun bókatitla innanlands.

Fjöldi titla sem prentaður er erlendis er 522 eða 78,3% en var 490 eða um 79,8% í fyrra. Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 667 í Bókatíðindunum í ár en var 614 árið 2018.

Skoðað var hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis er eftir flokkum:

  • Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 156; 65 (42%) prentuð á Íslandi og 91 (58%) prentuð erlendis.
  • Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 237; 53 (22%) prentuð á Íslandi og 184 (78%) prentuð erlendis.
  • Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 49; 4 (8%) prentuð á Íslandi og 45 (92%) prentuð erlendis.
  • Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 225; 23 (10%) prentuð á Íslandi og 202 (90%) prentuð erlendis.