Frá 12. mars síðastliðnum hefur Seðlabanki Íslands keypt aflandskrónueignir í tveimur áföngum fyrir samtals um 112,4 milljarða króna á genginu 137,5 krónur á evru. Samkvæmt mati Seðlabankans nema aflandskrónueignir um 88 ma.kr. eftir viðskiptin. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Seðlabanka Íslands .

Í mars síðastliðinn var tilkynnt um samkomulag um kaup á aflandskrónueinum, að fjárhæð u.þ.b. 90 milljarðar króna á genginu 137,5 krónur á evru. Hægt er að lesa tilkynninguna frá bankanum hér:

Frá 12. mars síðastliðnum hefur Seðlabanki Íslands keypt aflandskrónueignir í tveimur áföngum fyrir samtals um 112,4 milljarða króna á genginu 137,5 krónur á evru.
Seðlabankinn tilkynnti 12. mars síðastliðinn um samkomulag um kaup á aflandskrónueignum, eins og þær eru skilgreindar í lögum nr. 37/2016, um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, að fjárhæð u.þ.b. 90 milljarðar króna á genginu 137,5 krónur á evru. Jafnframt var tilkynnt að bankinn hygðist bjóða öðrum eigendum aflandskrónueigna sömu kjör. Það boð var ítrekað 4. apríl og 5. maí sl. með fréttum bankans um fyrirkomulag og skilmála. Tilboðið náði til aflandskrónueigna í formi innstæðna, víxla og skuldabréfa sem gefin eru út af ríkissjóði eða Íbúðalánasjóði, og innstæðubréfa Seðlabankans (CBI2016). Frestur til að ganga að tilboði bankans var framlengdur í tvígang en rann svo út föstudaginn 15. júní sl. og fór lokauppgjör viðskiptanna fram í gær.
Alls keypti Seðlabankinn í þessum viðskiptum aflandskrónueignir fyrir 112,4 ma.kr. að markaðsvirði sem skiptust milli eignarflokka eins og sjá má í eftirfarandi töflu:

Eignaflokkar aflandskrónueigna m.kr.

Reiðufé og innstæðubréf:     46.501
Ríkisbréf og -víxlar:                61.988
Skuldabréf Íbúðalánasjóðs:    3.954
Samtals:                                 112.443

Samkvæmt mati Seðlabankans nema aflandskrónueignir um 88 ma.kr. eftir viðskiptin.
Að gefnu tilefni vekur Seðlabanki Íslands athygli þeirra sem kunna að hafa gengið að tilboði bankans og uppfylla skilyrði 12. gr. laga nr. 37/2017 um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum á að með lögum nr. 27/2017 sem tóku gildi 27. maí 2017 var heimild til úttektar af reikningum háðum sérstökum takmörkunum samkvæmt ákvæðinu breytt. Eftir breytinguna hafa einstaklingar heimild til þess að taka út allt að 100.000.000 kr. af reikningi háðum sérstökum takmörkunum á almanaksári ef þeir geta sýnt fram á samfellt eignarhald á aflandskrónueign frá 28. nóvember 2008. Þessa heimild hafa einnig þeir einstaklingar sem áttu íslenskar krónur á fjárvörslureikningi, sem teljast aflandskrónueignir skv. b-lið 1. tölul. 2. gr. laga nr. 37/2016, við gildistöku laganna.
Ofangreind breyting á heimild til úttektar samkvæmt 12. gr. laga nr. 37/2016 á aflandskrónueignum var gerð eftir að Seðlabanki Íslands bauðst til þess að kaupa slíkar eignir í skiptum fyrir reiðufé í evrum á genginu 137,5 krónur á evru, en áður en uppgjör viðskiptanna fór fram. Í ljósi þess að einhverjir þeirra sem gengu að tilboði bankans kunna að hafa átt heimild til úttektar skv. hinu breytta ákvæði býður Seðlabankinn þeim sem telja sig uppfylla skilyrði ákvæðisins um samfellt eignarhald á aflandskrónueign að óska eftir staðfestingu þess efnis frá bankanum. Uppfylli þeir skilyrði ákvæðisins mun bankinn greiða þeim mismuninn á skráðu sölugengi Seðlabankans hinn 15. júní 2017 og tilboðsgenginu í evrum með hliðsjón af heimildinni.