Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um tæpa 5 milljarða króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um tæplega 1,8 milljarð króna á árinu. Á sama tíma jukust skuldir og skuldbindingar A-hluta úr 83,8 milljarða í tæpa 98,6 milljarða, og samstæðu A- og B- hluta úr 290,5 milljarða í 297,3 milljarða. Þar af jukust langtímaskuldir úr 40,6 milljarða í 47 milljarða.

Rekstrarniðurstaðan var 3.182 milljónum króna betri en gert var ráð fyrir segir í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Betri rekstrarniðurstaða skýrist einkum af hærri skatttekjum, hærri framlögum Jöfnunarsjóðs og hærri tekjum af sölu byggingarréttar og söluhagnaði fasteigna en á móti kemur hærri gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga og gjaldfærsla vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð.

2 milljarða betri rekstrarniðurstaða

Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 4,5 milljarða króna en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2,4 milljarða króna Niðurstaðan er því um 2 milljarða betri en gert var ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 583 milljörðum króna, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 297 milljónir króna og eigið fé var 285 milljörðum en þar af var hlutdeild meðeigenda 15,3 milljarðar.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 49,0% en var 45,8% um síðustu áramót.

Matsbreyting eigna skipti sköpum

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 28 milljarða króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 14,6 milljarða króna. Rekstrarniðurstaðan er því 13,5 milljarða króna betri en gert var ráð fyrir.

Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 24,5 milljarða króna sem er um 4.624 milljónum króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf.