Afkoma hins opinbera var jákvæð um 6,1 milljarð króna á 2. ársfjórðungi 2019 sem nemur um 0,8% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Tekjur hins opinbera jukust úr 288 milljarða króna á 2. ársfjórðungi 2018 í 308,5 milljarða á 2. ársfjórðungi 2019 eða um 7,1%. Þar hefur tímasetning tekjufærsla arðgreiðslna mikil áhrif en árið 2018 tekjufærðu fjármálafyrirtækin arðgreiðslur sínar á fyrsta ársfjórðungi 2018 á meðan tæp 70% af arðgreiðslum voru tekjufærðar á 2. ársfjórðungi 2019.

Á sama tíma jukust heildarútgjöld hins opinbera um 6,1% á 2. ársfjórðungi 2019 frá sama tímabili fyrra árs. Þar vegur launakostnaður þyngst en hann nemur um 35,3% af heildarútgjöldum ríkisins. Fjárfesting hins opinbera jókst um rúmlega 21% á 2. ársfjórðungi 2019 samanborið við sama tímabil fyrra árs, taka þarf þó tillit til þess að að ríkið fékk nýjan Herjólf afhentan og er gjaldfærð fjárfesting vegna hans 4,4 milljarðar króna.