Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 32,2 milljarða króna á 1. ársfjórðungi 2020, eða sem nemur 4,8% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

„Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi dregist saman um 5,3% frá 1. fjórðungi 2019, sem rekja má til samdráttar í helstu tekjustofnum ríkissjóðs en þeir eru skattar á tekjur og hagnað, virðisaukaskattur og tryggingagjald. Að auki voru engar arðgreiðslur tekjufærðar frá fjármálafyrirtækjum samanborið við tekjufærðan arð upp á 5,3 milljarðar króna á 1. ársfjórðungi 2019," segir í tilkynningu á vef Hagstofunnar.

„Áætlað er að heildarútgjöld hafi aukist um 4,1% á 1. ársfjórðungi 2020 frá sama tímabili fyrra árs. Launakostnaður vegur þar þyngst en hann er áætlaður 34,3% af heildarútgjöldum hins opinbera. Áætlað er að félagslegar tilfærslur til heimila hafi aukist um 20,8% frá 1. fjórðungi 2019 og má þar rekja stærstan hluta af auknum útgjöldum til Atvinnuleysistryggingasjóðs."

Takmörkuð áhrif af Covid-19 á 1. ársfjórðungi

„Þrátt fyrir merkjanleg áhrif Covid-19 á 1. ársfjórðungi, sem meðal annars koma fram í tekjusamdrætti og auknum útgjöldum Atvinnuleysistryggingasjóðs, kom hluti þeirra aðgerða sem ráðist var í eða hafa verið boðaðar ekki til framkvæmda fyrr en undir lok tímabilsins eða síðar. Því má gera ráð fyrir að áhrifin af faraldrinum á afkomu hins opinbera komi því með skýrari hætti fram í hagtölum um líðandi ársfjórðung sem birtar verða í september næstkomandi."