Aflaverðmæti úr sjó var 11,7 milljarðar króna síðastliðinn nóvember sem 19.2% aukning samanborið við nóvember 2017. Vermæti botnfiskaflans nam 9,3 milljörðum króna og jókst um 13% miðað við sama tímabil 2017. Verðmæti uppsjávaraflans var 1,7 milljarðar króna sem er aukning upp á tæp 70% miðað við nóvember 2017. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Verðmæti afla sem seldur var til eigin vinnslu innanlands nam 6,1 milljarði, sem er um 52% af heildarverðmæti. Verðmæti sjófrysts afla nam 3,2 milljörðum og verðmæti afla sem fór á fiskmarkaði til vinnslu innanlands nam 1,7 milljarði, eða um 15% af heildarverðmæti. Á 12 mánaða tímabili, frá desember 2017 til nóvember 2018, nam aflaverðmæti úr sjó tæpum 127 milljörðum króna sem er 16,1% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr.

Af einstökum botnfisktegundum jókst verðmæti þorsks um 5% og var 5,6 milljarða króna í nóvember sl.. Verðmæti ýsu jókst um heil 88% úr 774 milljónum króna í tæpan 1,5 milljarða króna.