Laun þeirra ríkisstarfsmanna sem eru í aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands fá nú í fyrsta sinn svokallaða launaskriðstryggingu sem gefur að meðaltali 1,8% hækkun á laun afturvirkt frá 1. janúar 2017. Eins og Viðskiptablaðið sagði frá um daginn fá starfsmenn BSRB og ASÍ einnig hækkunina greidda rúmt ár aftur í tímann.

Leiðréttingin kemur til útborgunar á flestum stöðum þann 1. mars en þetta er gert á grundvelli rammasamkomulags í tengslum við síðustu kjarasamningasegir í fréttatilkynningu. Þar kemur jafnframt fram að launatöflur starfsmannanna verði ekki lengur háð lífaldri en allir voru færðir upp í efsta þrep launatöflunnar sem var hækkuð um 1%.

Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins segir þetta í fyrsta skipti sem reyni á launaþróunartrygginguna. „Ég fagna því að leiðréttingin sé nú í hendi og tryggir að fólk í okkar félögum fái hluta launaskriðsins sem er á almenna vinnumarkaðnum.“

Ræstingastarfsmenn fá 1,8% hækkun

Tryggingin er mæld út frá launaskriði árin 2013 til 2016 en annað uppgjör verður svo gerð fyrir árin 2017 og 2018 og leiðrétt ef tilefni er til.

Útfærsla tryggingarinnar er misjöfn eftir landssamböndum en ákveðið var að SGS myndi feta sig í átt að nýrri launatöflu líkt og flest opinber félög innleiddu í síðustu kjarasamningum. Því eru allir starfsmenn færðir í 6. þrep launatöflunnar, sem er efsta þrepið og taflan hækkuð öll um 1%.

Þetta gerir það að verkum að fólk ber aðeins misjafnt úr býtum eftir aldri og röðun í launatöflu, en launatöflur eru þá ekki háðar lífaldri lengur og því verður auðveldara að breyta töflunni til samræmis við aðra í næstu kjarasamningum. Félagsmenn sem starfa við ræstingar fá 1,8% hækkun á tímamælda og flatamælda ákvæðisvinnu.