Alexander Jensen Hjálmarsson hefur tekið að sér aðstoðarsjóðsstjórn í GAMMA: Credit, Liquid og Equity.

Alexander hefur starfað hjá GAMMA í þrjú ár í sérhæfðum fjárfestingum en áður en hann gekk til liðs við okkur starfaði hann í eignastýringu hjá Sjóvá auk þess að sinna kennslu við Háskóla Íslands. Hann er með B.Sc gráðu í iðnaðarverkfræði og viðskiptafræði frá HÍ auk meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja og hefur lokið löggildingu í verðbréfaviðskiptum.

Hlutabréfasjóðum GAMMA er nú stýrt af fjárfestingarteymi GAMMA sem er myndað af sjóðsstjórum félagsins og sér forstjóri félagsins um daglegan rekstur sjóðanna ásamt aðstoðarsjóðsstjóra.