Ara Edwald, framkvæmdastjóra Íseyjar útflutnings, systurfélags Mjólkursamsölunnar, hefur verið sagt upp störfum. Stjórn Íseyjar útflutnings tilkynnti þetta í tölvupósti til félagsmanna í Auðhumlu, aðaleiganda MS og Íseyjar, í kvöld að því er fram kemur á Mbl.is.
Ari fór í leyfi frá störfum sínum á fimmtudaginn í kjölfar þess að Vítalía Lazareva sakaði hóp þjóðþekktra manna um að beitt sig kynferðisofbeldi í sumarbústaðarferð í viðtali í þættinum Eigin konur sem birtur var fyrr í vikunni.
„Í síðustu viku birtist í fjölmiðlum umfjöllun þar sem framkvæmdastjóri ÍSEYJAR útflutnings, auk þriggja annarra nafngreindra aðila, er ásakaður um þátttöku í ósæmilegri kynferðislegri háttsemi gagnvart ungri konu í lok árs 2020," er meðal þess sem fram kemur í tölvupóstinum samkvæmt mbl.is.
„Ónákvæmar upplýsingar um framangreint bárust stjórn í lok október 2021. Málið var strax tekið alvarlega vegna þess möguleika að upplýsingarnar væru réttar, og hefur stjórn félagsins fundað oft um málið, bæði með framkvæmdastjóra og án hans. Málið var enn til meðferðar í stjórn í síðustu viku þegar vatnaskilin urðu. Eins og allir gera sér grein fyrir eru mál af þessum toga bæði alvarleg og erfið," segir í póstinum.
„Þær ásakanir sem nú eru komnar fram á hendur framkvæmdastjóra eru með þeim hætti að stjórn félagsins taldi sér skylt, að vel athuguðu máli, að segja upp ráðningarsamningnum við hann, með áskilnaði til riftunar síðar ef tilefni gefst til, með hliðsjón af hagsmunum félagsins, starfsfólks og viðskiptamönnum þess, og ekki síður meintum þolanda," segir enn fremur í tölvupóstinum.
Vítalía nafngreindi mennina ekki í viðtalinu en hafði áður nafngreint Ara, Arnar Grant, Hreggvið Jónsson og Þórð Má Jóhannesson í færslu á Instagram. Arnar fór í leyfi frá störfum hjá World Class, Hreggviður sagði sig úr stjórn Vistor og tengdra félaga en hann er aðaleigandi fyrirtækisins og þá sagði Þórður Már sig úr stjórn Festar þar sem hann gegndi stjórnarformennsku.