Landssamband veiðifélaga mótmælir harðlega drögum að frumvarpi til breytinga á fiskeldislögum, sem lögð voru fram nýlega af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu.

Drögin eru sögð gjörbreytt frá því frumvarpi sem kynnt var fyrir ári, og brot á samkomulagi starfshóps ráðherra um stefnumörkun í fiskeldi. „Leikmenn“ séu settir til höfuðs vísindamönnum Hafrannsóknastofnunar á nýjum samráðsvettvangi, og ráðherra gefið vald til að fara gegn vísindalegum niðurstöðum. Þetta segir sambandið brot á skýrum ákvæðum náttúruverndarlaga um meðferð stjórnvalda á vísindalegum niðurstöðum.

Meðferð áhættumats um erfðablöndun er sögð gjörbreytt í frumvarpinu, og veita ráðherra geðþóttavald yfir umhverfismálum fiskeldis.

Landssambandið segist telja að frumvarpið hafi verið unnið einhliða í samráði fiskeldismenn, og segir það verulega tilslökun fiskeldinu til handa frá því frumvarpi sem lagt var fram síðastliðið vor, og í engu samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um vernd lífríkisins.

Tilkynningin í heild:

Landssamband veiðifélaga gerir alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur kynnt drög að frumvarpi til breytinga á fiskeldislögum. Drögin eru gjörbreytt frá því frumvarpi sem lagt var fyrir vorþingið 2018 og brot á því samkomulagi sem náðist í starfshópi ráðherra um stefnumörkun í fiskeldi. Með nýju ákvæði um svokallaðan samráðsvettvang eru leikmenn að meirihluta settir þar til höfuðs vísindamönnum Hafrannsóknarstofnunar og skal vettvangurinn leggja mat á vísindastörf þeirra með álitsgerð á áhættumati erfðablöndunar. Þá er ráðherra gefið vald til að hafa vísindalegar niðurstöður að engu sýnist honum svo. Þessi ákvæði brjóti gegn skýrum ákvæðum náttúruverndarlaga um meðferð stjórnvalda á vísindalegum niðurstöðum. Landssamband veiðifélaga mótmælir þessum hugmyndum ráðherra harðlega í innsendri umsögn um frumvarpsdrögin og segir þau árás á vísindamenn Hafrannsóknarstofnunar.

Í greinargerð sem fylgir frumvarpsdrögunum er því ranglega haldið fram að meginefni þess, þ.e. það sem mestu máli skiptir, byggi á tillögum starfshóps um stefnumörkun í fiskeldi sem allir nefndarmenn samþykktu með sérstakri undirritaðri yfirlýsingu. Þvert á móti er kollvarpað því sem var þar samþykkt. Kúvending á meðferð áhættumats um erfðablöndun í frumvarpinu færir ráðherra málaflokksins geðþóttavald yfir umhverfismálum fiskeldisins enda þarf ráðherra ekki að rökstyðja ákvörðun sína um hvort áhættumat skuli gilda hverju sinni eða ekki samkvæmt frumvarpinu.

Landssambandið telur að frumvarpið hafi verið unnið einhliða í samráði fiskeldismenn enda sjáist fingraför þeirra greinilega á málinu og gagnrýnir algert samráðsleysi við aðra hagsmunaaðila. Farið er í frumvarpinu gegn markmiðsákvæðum fiskeldislaga um verndun villtra laxastofn og stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar en þar segir að stefna beri að „ábyrgu fiskeldi, þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkis er höfð að leiðarljósi á grundvelli vísinda og rannsókna“.

Þá gagnrýnir Landssambandið að ákvæði um að áhættumatið skuli endurskoðað strax enda engin reynsla fengin á þeim skamma tíma síðan það var gefið út. Þá hefur gildishlöðnum ákvæðum verið bætt í frumvarpið svo sem að taka skuli tillit til „mótvægisaðgerða“ við gerð áhættumats.

Þessi drög að frumvarpið eru því veruleg tilslökun fiskeldinu til handa frá því frumvarpi sem ríkisstjórnin lagði fram síðastliðið vor og í engu samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um vernd lífríkisins.

Segir í umsögninni að verði það frumvarp sem hér er til umfjöllunar óbreytt að lögum er verið að efna til stórfelldra átaka stjórnvalda og löggjafans við þá sem gæta hagsmuna veiðiréttareigenda að lögum. Í því samhengi má minna á að tekjur af stangveiði er ein meginstoð landbúnaðar á Íslandi. Þegar landið er tekið í heild eru tekjur af stangveiði 28 prósent af hagnaði og launakostnaði í landbúnaði. Hæst er hlutfallið á Vesturlandi þar sem þessar tekjur af stangveiði eru 69% af hagnaði og launakostnaði í landbúnaði, og næst hæst á Austurlandi þar sem það er 34 prósent.