Arion banki hefur opnað á aðgengi að reiknings- og kortaupplýsingum frá öðrum bönkum í Arion banka appinu. Um er að ræða tímamót í fjármálaþjónustu hér á landi og er þessi nýja þjónusta unnin í samstarfi við Meniga.

Allir sem eru með reikninga eða kort hjá fleiri en einum banka og veita heimild fyrir flutningi gagna, geta fengið heildstæða yfirsýn yfir fjármál og útgjöld heimilisins á einum stað í Arion appinu.

Þessi nýjung er ekki aðeins fyrir viðskiptavini Arion banka heldur er hún öllum opin. Það eina sem þarf að gera er að sækja Arion appið, skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og tengja þá reikninga og kort sem hver og einn vill sjá.

Einstaklingur, sem er t.d. með debetkort hjá Arion banka en kreditkort hjá öðrum bönkum, getur þannig séð stöðu og hreyfingar á öllum sínum kortum í Arion appinu. Að auki eru þessar upplýsingar teknar saman og flokkaðar eftir útgjaldaliðum heimilisins.

Hver og einn getur svo unnið með flokkunina, endurflokkað tilteknar færslur og lagað að eigin þörfum. Þannig fæst einstök yfirsýn yfir tekjur og útgjöld heimilisins og þróun þeirra yfir ákveðið tímaskeið. Lausnin er í anda opinnar bankaþjónustu og nýrrar tilskipunar Evrópusambandsins um greiðsluþjónustu (PSD2) sem verður innleidd hér á landi á næstu misserum.

„Við vitum að íslenskir neytendur eru fljótir að tileinka sér nýjungar og nýta sér stafrænar lausnir. Okkar viðskiptavinir hafa sýnt það í verki að þeir kunna vel að meta hversu aðgengilegt og þægilegt Arion appið er, en á hverjum degi nýta að meðaltali 40 þúsund viðskiptavinir appið,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdarstjóri viðskiptabankasviðs.

„Við viljum stöðugt bæta okkar þjónustu og appið er ein mikilvægasta og vinsælasta þjónustuleiðin okkar. Það er því sérstaklega ánægjulegt að kynna þessa nýjung og að hún standi öllum til boða, óháð því hvort fólk er með reikninga eða kort hjá okkur eða öðrum bönkum.“