Þrátt fyrir að sumri sé tekið að halla í íslensku efnahagslífi er enn bjart yfir að mati greiningardeildar Arion banka.

Bankinn spáir 3% hagvexti í ár og næsta ár, en að talsvert hægi á vextinum þegar líður undir lok spátímans. Heilt yfir hefur spáin tekið litlum breytingum frá því í apríl, enda voru niðurstöður fyrsta fjórðungs í góðu samræmi við væntingar. Mismuninn á spánum fyrir árið í ár má rekja til meiri atvinnuvegafjárfestingar en áður var talið en á móti vega lakari horfur í ferðaþjónustunni. Horfur eru á minni viðskiptaafgangi og verður hann hverfandi á síðari hluta spátímans.

Einkaneyslan mun keyra áfram hagvöxtinn, studd áfram af launahækkunum og litlu atvinnuleysi. Fjárfesting mun leggja hönd á plóg, sérstaklega íbúðafjárfesting, á meðan útflutningur tekur aftursætið. Verðbólgan mun stíga þegar fram í sækir.