Arna Grímsdóttir hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur HS Orku og hefur hún störf hjá fyrirtækinu í byrjun næsta árs. Arna mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn HS Orku. Frá árinu 2009 hefur Arna starfað sem lögfræðingur hjá Reitum fasteignafélagi og sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs fyrirtækisins frá 2015.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá fyrir helgi mun Ragnheiður Margrét Ólafsdóttir taka við starfi Örnu hjá Reitum. Arna er með Cand.jur. frá lagadeild Háskóla Íslands og réttindi sem héraðsdómslögmaður.

Arna er stjórnarformaður í stjórn UN Woman á Íslandi, hún situr í stjórn Akta sjóða hf. og hefur setíð í stjórn félags fyrirtækjalögfræðinga sem og fjölmargra dóttur- og systurfélaga Reita.