Arnar Atlason, framkvæmdastjóri Tor fiskvinnslu í Hafnarfirði, var kjörinn nýr formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) á aðalfundi samtakanna í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Arnar, sem var einn í framboði, tekur við af Jóni Steinari Elíassyni, sem stýrt hefur SFÚ í níu ár. Jón Steinn tók sæti í stjórn samtakanna.

Í ályktun aðalfundarins var lögð áhersla á að enginn ferskur fiskur verði fluttur úr landi án þess að hann hafi fyrst verið boðinn til sölu á opnum uppboðsmarkaði hér á landi.

Þá lagði SFÚ fram áskoranir á stjórnvöld:

  • SFÚ skorar á stjórnvöld að skapa sjávarútveginum heilbrigt samkeppnisumhverfi með því að stuðla að réttri verðmyndun á afla. Slíkt stuðli að réttu uppgjöri útgerðar, rétti uppgjöri til sjómanna, réttum hafnargjöldum, réttum gjöldum til hins opinbera og réttu verði til neytenda.
  • SFÚ skorar á stjórnvöld að tryggja meðlögum fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu, þar sem veiðarnar eru reknar í skjóli opinbers einkaleyfis eða verndar á sama tíma og vinnsluhlutinn er í frjálsri samkeppni. Ekki sé hægt að sýna fram á rétta rentu af auðlindinni á meðan hægt er að flytja arðinn af veiðum yfir á vinnslu.

Þá kemur fram í ályktun SFÚ að samtökin leggi áherslu á að meira hráefni skili sér inn á fiskmarkaðina og bendir á að mikilvægt er að ívilna útgerðum, sem landa afla á íslenskum fiskmörkuðum.