Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, lögmaður hefur verið ráðin sem yfirlögfræðingur Nasdaq kauphallarinnar á Íslandi og Nasdaq verðbréfamiðstöðvar. Eins og Viðskiptablaðið sagði frá var hún ráðin til kauphallarinnar í haust.

Áður hafði Árnína starfað hjá Samtökum fjármálafyrirtækja og þar áður á lögfræðisviði Actavis Group í Sviss.  Fyrir það, á árunum 2004 til 2010 var hún forstöðumaður lögfræðisviðs Nasdaq kauphallarinnar á Íslandi.

Árnína Steinunn útskrifaðist úr lagadeild Háskóla Íslands árið 2001 og fékk réttindi sem héraðsdómslögmaður árið eftir. Árnína Steinunn er gift Kristjáni Árna Jakobssyni, VP Finance hjá Alvotech hf. og eiga þau einn son.

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum.

Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði.

Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 12 billjón Bandaríkjadala.