Tveir nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir til starfa hjá Landsvirkjun, þær Ásbjörg Kristinsdóttir og Jóna Bjarnadóttir.

Ásbjörg verður framkvæmdastjóri á sviði framkvæmda. Hún hefur starfað hjá Landsvirkjun með hléum frá árinu 2002, undanfarin ár sem forstöðumaður á framkvæmdasviði. Ásbjörg stýrði byggingu Búrfellsstöðvar II, fyrst kvenna á Íslandi til að stýra slíku verkefni. Hún er með doktorspróf í verkfræði og stjórnun frá MIT.

Jóna verður framkvæmdastjóri nýs sviðs samfélags- og umhverfis. Jóna hóf störf hjá Landsvirkjun árið 2014 en hefur frá árinu 2017 veitt deild umhverfis og auðlinda forstöðu. Hún er með meistaragráðu í umhverfisstjórnun og stefnumótun frá háskólanum í Lundi. Jóna hefur mikla reynslu af umhverfismálum og samvinnu við hagaðila.

Um leið og Ásbjörg og Jóna taka við framkvæmdastjórastöðum sínum verða ýmsar aðrar breytingar á skipulagi Landsvirkjunar. Þannig hefur Einar Mathiesen, sem áður stýrði orkusviði fyrirtækisins tekið við nýju sviði vinds og jarðvarma.

Jafnframt hefur Gunnar Guðni Tómasson tekið við sem framkvæmdastjóri nýs sviðs vatnsafls, en hann stýrði áður framkvæmdasviði.

Eftir þessar breytingar eiga átta framkvæmdastjórar sæti í framkvæmdastjórn Landsvirkjunar og eru kynjahlutföll nú jöfn, í fyrsta skipti í tæplega 56 ára sögu fyrirtækisins.