Ásgeir Helgi Jóhannsson, héraðsdómslögmaður hefur bæst í eigendahóp Atlas lögmanna.

Ásgeir Helgi lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands í október 2005 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2007. Ásgeir hefur undanfarin 7 ár starfað sem lögmaður og deildarstjóri á lögfræðisviði Landsbankans hf., auk þessa að sitja í stjórn Auðkenni ehf, áður starfaði hann sem lögmaður á Akureyri m.a. hjá Regula lögmannsstofu og LEX lögmannsstofu.

Ásgeir Helgi hefur undanfarin ár unnið að verkefnum tengdum rafrænum viðskiptum og upplýsingatæknirétti, samninga- og kröfurétti, fjármála- og félagarétti. Auk þess er hann virkur meðlimur í Karlakórnum Esju.

Aðrir eigendur lögmannsstofunnar eru hæstaréttarlögmennirnir Bjarni Hauksson, Björgvin Þórðarson, Jóhann H. Hafstein að því er kemur fram á heimasíðu stofunnar.