Ferðamannapúlsinn í júnímánuði mældist 83,4 stig af 100 stigum mögulegum og er því 1,7 stigum hærri en á sama tíma í fyrra. Ferðamannapúlsin mældist hæstur meðal Ástrala (89,2 stig), þar á eftir eru Kanadabúar með 85,4 stig, en hann mælist lægstur meðal breskra ferðamanna (80,6 stig).

Erlendir ferðamenn mjög líklegir til að mæla með Íslandi sem áfangastað Ferðamannapúlsinn er metinn út frá fimm undirþáttum: heildaránægju með ferðina, líkum á að mæla með Íslandi sem áfangastað, skynjun á gestrisni Íslendinga, hvort að ferðin hafi uppfyllt væntingar og hvort að ferðin hafi verið peninganna virði. Líkur á meðmælum er sá þáttur sem mældist hæstur í júní, eða 89,2 stig af 100 mögulegum á mat ferðamanna á hvort ferðin hafi verið peninganna virði var sá þáttur sem mældist lægstur, eða 78,2 stig af 100 mögulegum.

Ferðamenn gista lengur yfir sumarmánuðina Samhliða mælingum á Ferðamannapúlsinum er ýmsum gögnum safnað um venjur ferðamanna hér á landi og því má sjá viss árstíðatengd mynstur meðal þeirra. Eitt af því sem breytist yfir sumarmánuðina er að erlendir ferðamenn dvelja almennt lengur á landinu. Til að mynda jókst hlutfall ferðamanna sem dvöldu í fimm nætur eða lengur úr 55% í 65% milli mánaða, en þess má geta að ferðamenn sem gista í fimm nætur eða lengur eru almennt ánægðari heldur en þeir sem gista í fjórar nætur eða skemur.