Icelandic Glacial hefur tryggt sér nýtt fjármagn frá skuldabréfasjóði sem stýrt er af BlackRock´s US Private Credit. Lánið nemur 35 milljónum Bandaríkjadala eða tæplega 4,4 milljörðum króna og hefur forgang á aðrar kröfuhafa Icelandic Glacial. Jafnframt er lokið hlutafjáraukningu í Icelandic Glacial að fjárhæð 31 milljón Bandaríkjadala eða tæplega fjögurra milljarða íslenskra króna sem boðin verður bæði núverandi og nýjum fjárfestum til þess að renna styrkari stoðum undir áframhaldandi vöxt. Icelandic Glacial greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

„Það er ákaflega ánægjulegt að fá þessa kröftugu innspýtingu úr skuldabréfasjóðum BlackRock sem er á meðal öflugustu sjóðastýringarfyrirtækja heims. Þessi nýja fjármögnun er mikil viðurkenning á þeim árangri sem við höfum náð á undanförnum árum í að hasla okkur alþjóðlegan völl sem eitt af leiðandi vörumerkjum í hágæða drykkjarvatni," segir Jón Ólafsson, stofnandi og stjórnarformaður Icelandic Glacial, í tilkynningunni.

„Við förum inn í þetta verkefni full tilhlökkunar og bjartsýni. Við höfum fylgst með þróun og vexti vörumerkisins í talsverðan tíma og erum staðráðin í því að leggja allt okkar af mörkum til þess að fjármagna og taka þátt í enn frekari umsvifum og markaðshlutdeild Icelandic Glacial í Bandaríkjunum og víðar um heiminn," er haft eftir Dan Worrel, framkvæmdastjóra hjá BlackRock US Private Credit og nýjum stjórnarmanni í Icelandic Glacial, í fréttatilkynningu.