Volkswagen segir í bréfi til þýska þingsins að átta milljónir bifreiða innan Evrópusambandsins hafi hugbúnaðinn. Reuters greinir frá.

Bréfið er dagset þann 2. október en það var sent til þýska þingsins og samgöngunefndar þingsins. Í bréfinu kemur fram að bílar með 1,2, 1,6 og tveggja lítra vél af gerðinni EA 189 innihaldi hugbúnaðinn.