Að jafnaði voru 201.100 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í október 2017, sem jafngildir 82% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 193.800 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,6%.

Þetta kemur fram í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands , en samanburður mælinga fyrir október 2016 og 2017 sýna að atvinnuþátttaka fólks stendur í stað.

Þó að starfandi fólki hafi fjölgað um 4.900 lækkaði hlutfall þeirra af mannfjölda um 0,8 prósentustig. Atvinnulausir eru um 2.000 fleiri en á sama tíma árið 2016 og hlutfall þeirra jókst um 0,9 prósentustig. Alls voru 44.300 utan vinnumarkaður og fjölgaði þeim um 1.700 manns frá því í október 2016 en þá voru þeir 42.600.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,6% í október

Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 203.200 í október 2017 sem jafngildir 82,8% atvinnuþátttöku, en það er aukning um 1,7 prósentustig frá september 2017.

Áætlaður fjöldi atvinnulausra í október var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 7.300 og fjölgaði um 800 manns frá áætluðum fjölda í september. Hlutfall atvinnulausra hækkaði því á milli september og október 2017 um 0,3 prósentustig, úr 3,3% í 3,6%.

Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í október 2017 var 79,8%, sem er 1,4 stigum hærra en það var í september. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar minnkaði á milli mánaða úr 46.300 í 42.300, eða um 4.000 manns.

Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka hefur dregist saman um 0,2 prósentustig og hlutfall starfandi lækkað um 0,6 prósentustig. Atvinnuleysi hefur hins vegar aukist um 0,5 prósentustig.