Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var fjöldi fólks á vinnumarkaði 209.900 í maí 2019. Frá þessu er greint á vef Hagstofunnar .

„Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 81,1%, sem er 1,3 prósentustigi lægra hlutfall en í apríl. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu voru atvinnulausir 10.000 í maí, eða 4,7%, sem er einu og hálfu prósentustigi hærra en í apríl. Fyrir sama tímabil lækkaði leiðrétt hlutfall starfandi fólks um tvö og hálft prósentustig, eða í 77,2% fyrir maí 2019," segir í frétt á vef Hagstofunnar.

„Þegar horft er til síðustu sex mánaða sýnir leitni að árstíðaleiðréttar tölur um atvinnuþátttöku standa í stað. Hlutfall starfandi lækkaði lítillega eða um 0,5 prósentustig um leið og atvinnuleysi jókst um 0,6 prósentustig."