Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 201.900 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júlí 2017, sem jafngildir 83,3% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 199.800 starfandi og 2.100 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 82,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1% að því er kemur fram í frétt Hagstofu Íslands .

Er þetta lægsta mæling frá því að samfelldar mælingar Hagstofunnar hófust árið 2003.

Samanburður mælinga fyrir júlí 2016 og 2017 sýna að atvinnuþátttaka dróst saman um 2,5 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 1.900 manns en hlutfall starfandi af mannfjölda minnkaði um 1,6 stig. Atvinnulausir eru nú 2.000 færri en í júlí 2016 og hlutfallið þá var 2%. Þeir sem standa utan vinnumarkaðar samkvæmt mælingunni eru 40.400 sem er um 6.900 fleiri en í júlí 2016 en þá voru þeir 33.500.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 1,8% í júlí

Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu var fjöldi fólks á vinnumarkaði 197.100 í júlí 2017 sem jafngildir 81,1% atvinnuþátttöku, sem er lækkun um 1,8 prósentustig frá júní 2017. Fjöldi atvinnulausra í júlí var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 3.600 og fækkaði um 1.400 manns frá áætluðum fjölda atvinnulausra í júní. Hlutfall atvinnulausra lækkaði því á milli júní og júlí 2017 um 0,7 stig, úr 2,5% í 1,8%. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júní 2017 var 79,6%, sem er lægra en í júní eða sem nemur 1,2 stigum. Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuþátttaka hefur dregist saman um 0,5 stig. Hlutfall starfandi stendur nánast í stað og dregið hefur úr atvinnuleysi um 0,7 stig.