Sýslumönnunum á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi hafa borist tilkynningar frá ÁTVR um meint brot Bjórlands ehf., Brugghúss Steðja ehf. og Sante ehf. vegna skyldna sem á þeim hvíla samkvæmt áfengisheildsölu-, áfengisframleiðslu- og áfengisinnflutningsleyfum sem sýslumennirnir hafa gefið út. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ÁTVR .

„Brotin felast í smásölu áfengis í vefverslunum í trássi við gildandi lög. ÁTVR telur að fyrir liggi óyggjandi sönnun fyrir brotum leyfishafanna. Með tilkynningunum var farið fram á að sýslumennirnir hæfu þegar í stað áminningarferli gagnvart þessum aðilum eins og leyfisveitanda er skylt að gera. Lög kveða á um að  leyfishafi sem verður uppvís að frekari brotum á meðan áminning er í gildi skuli sviptur leyfinu um stundarsakir eða fyrir fullt og allt,“ segir í tilkynningunni.

Tilkynningarnar eru liður í áformum ÁTVR um að fá niðurstöðu í ágreining um túlkun á gildandi lögum um heimildir til smásölu áfengis. ÁTVR hefur ekki útilokað að leita til dómstóla vegna hinna meintu brota og hafa krafist lögbanns á vefverslanir félaganna þriggja.

„Það er mat ÁTVR að starfræksla vefverslananna feli í sér ótvírætt ásetningsbrot gegn einkaleyfinu og grunnstoðum áfengisstefnu stjórnvalda, þar sem skýrt er kveðið á um hlutverk ÁTVR. Fram kom tillaga á Alþingi sem fól í sér að hægt yrði að selja áfengi beint til íslenskra neytenda úr innlendum vefverslunum. Þessi tillaga fékk ekki framgang og áfengisstefnunni hefur ekki verið breytt.“

Þá ítrekar ÁTVR að vefverslun með áfengi af innlendum lager brjóti í bága við íslensk lög og að einungis sé löglegt að selja áfengi til einkanota úr vöruhúsi sem er staðsett erlendis, óháð þjóðerni félagsins. Þá verður einstaklingurinn sjálfur að flytja inn áfengið sem keypt er af erlendum lager auk þess að standa straum af sköttum og skyldum.