Aukaúthlutun úr launasjóð listamanna, í kjölfar COVID-19, eru 600 mánaðarlaun. Fjöldi umsækjenda var 1.390. Listamannalaun fá 278 listamenn og árangurshlutfall umsækjenda er 20%. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Alls var sótt um 5.747 mánuð og er árangurshlutfall sjóðsins því rétt ríflega 10%, reiknað eftir mánuðum. Starfslaun listamanna eru 407.413 kr. á mánuði samkvæmt fjárlögum 2020. Um verktakagreiðslur er að ræða.

Í kjölfar heimsfaraldurs kom mennta- og menningarmálaráðuneytið á aukaúthlutun til starfslauna listamanna og var auglýstur umsóknarfrestur til 20. maí sl. Úthlutunin byggir á þingsályktun um sérstakt tímabundið fjárfestingarátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar kórónuveiru.