Leiðandi hagvísir Analytica hækkaði um 0,3% í ágústmánuði, en þrír af sex undirliðum vísitölunnar hækkuðu frá því í júlí. En tveir af undirliðunum hækkuðu frá fyrra ári. Hins vegar voru gildi fyrir fyrri mánuði endurskoðuð niðurávið og bendir hagvísirinn enn til að hægja sé farið á hagvexti niður á eðlilegra stig að því er segir í fréttatilkynningu .

„Eftir að leiðrétt er fyrir áhrifum árstíðasveiflu og langtímaleitni mælist aukning í verðmæti fiskafla, innflutningi og heimsvísitölu hlutabréfa,“ segir í tilkynningunni, en hagvísir fyrirtækisins gefur vísbending um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum byggt á þeim grunni að framleiðsla þá hafi aðdraganda í dag.

„Aukið verðmæti fiskafla hefur mest áhrif til hækkunar hagvísisins. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta er enn sterk. Áfram eru áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum. Langvinn stjórnarkreppa í kjölfar þingkosninga í lok okt. gæti einnig haft neikvæð áhrif.“

Yngvi Harðarsson hagfræðingur rekur Analytica, en vísitalan, sem reiknuð er á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins, er miðuð út frá verklagi OECD. Hinir sex undirliggjandi þættir vísitölunnar eru aflamagn, debetkortavelta, ferðamannafjöldi, heimsvísitala hlutabréfa, innflutningur og væntingavísitala Gallup.