Vestmannaeyjabær og Íslenskar heilsulindir ehf (ÍH), dótturfyrirtæki Blá lónsins, hafa gert með sér samkomulag um samstarf um að skoða gerð heilsulindar og baðaðstöðu í Vestmannaeyjum.Standa aðilar samkomulagsins sameiginlega að fýsileikakönnun um gerð baðlóns, heilsulindar, sjósundsaðstöðu og tengdra mannvirkja í Vestmannaeyjum.

Vestmannaeyjabær hefur um nokkurt skeið unnið að frumkönnun á því hvort nýta megi þá miklu orku sem verður til við byggingu nýrrar sorpbrennslu í bænum, auk varma úr hrauninu, til að styrkja afþreyingu og ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum.

Sérstaklega hafa verið skoðaðir möguleikar á manngerðu lóni og heilsulind við Skansinn sem tengd yrðu við hraunið úr Heimaeyjargosinu 1973, auk þess sem þessu samofnar hafa verið reifaðar hugmyndir um gerð sjósundsaðstöðu á Skansinum.

Enskt vinnuheiti á þessum hugmyndum er „LAVASPRING VESTMANNAEYJAR“, sbr. lýsingu sem Vestmannaeyjabær hefur útbúið að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Engin fjárhagsleg aðkoma bæjarins

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Samstarfs Vestmannaeyjabæjar og ÍH felur í sér könnun á fýsileika verkefnisins og að skoðað verði með jákvæðum hætti hugsanleg fjárfesting í verkefninu ef niðurstöður fýsileikakönnunar benda til að fjárfesting í því geti orðið hagkvæm.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir það gleðiefni þegar stórir fagaðilar í ferðaþjónustu sjái Vestmannaeyjar sem vænlegan kost til fjárfestinga. „Vestmannaeyjar hafa verið að byggjast hratt upp sem áfangastaður ferðamanna,“ segir Elliði.

„Samstarfið við alþjóðlega stórfyrirtækið Merlin hefur þegar skilað verkefni sem valda mun straumhvörfum í ferðaþjónustu og skapa sterkan segul sem draga mun að ferðamenn og auka þjónustu við þá. Allt er það án nokkurar fjárhagslegrar aðkomu Vestmannaeyjabæjar. Við horfum nú til þess að samstarfs við ÍH verði sambærilegt verkefni.“

Lavaspring er vinnuheitið á nýrri heilsulind Bláa lónsins í Vestmannaeyjum.
Lavaspring er vinnuheitið á nýrri heilsulind Bláa lónsins í Vestmannaeyjum.
© Aðsend mynd (AÐSEND)