Bankasýsla ríkisins hefur sent frá sér tilkynningu um viðskipti þátttakenda í útboði á 22,5% hlut í Íslandsbanka í síðasta mánuði. Samkvæmt henni liggur fyrir að 34 fjárfestar hafi minnkað eignarhlut sinn í bankanum að hluta frá því að útboðinu lauk en 25 fjárfestar hafi aukið við hlut sinn í bankanum.

Þá kemur fram að 60 fagfjárfestar í útboðinu birtast ekki á hluthafalista Íslandsbanka. Bankasýslan bendir á að erfitt sé að fullyrða um nákvæman fjölda þeirra sem selt hafa eignarhlut sinn í bankanum að fullu, m.a. þar sem viðkomandi fjárfestar hafi mögulega varslað hluti á safnreikningum, fjármagnað hluti hjá fjármálastofnun eða eru eignastýringaraðilar.

„Í þessu sambandi er vakin athygli á því að hlutafjáreign fjármálastofnana í Íslandsbanka fór úr 0,3% fyrir útboð í 4,1% af heildar hlutafé þann 11. apríl. Sú aukning samsvarar um 75% af eignarhlut þeirra fjárfesta sem keyptu í útboðinu en birtast ekki á hluthafalistanum.“

Gera má ráð fyrir að Bankasýslan sé hér með að bregðast við fréttaflutningi Kjarnans fyrr í vikunni en þar var haldið því fram að 132 af 207 fjárfestum í útboðinu hafi þegar selt sig niður að einhverju leyti eða öllu leyti í kjölfar útboðsins. Miðað við tilkynningu Bankasýslunnar má ætla að fjöldi þátttakenda sem minnkuðu hlut sinn í bankanum eftir útboðið hafi verið talsvert ofmetinn hjá Kjarnanum.

Sjá einnig: Bankasýslan leiðréttir Björn Leví

Stofnunin bendir jafnframt á að fjöldi hluthafa Íslandsbanka hafi verið 15.304 talsins þann 11. apríl síðastliðinn og hefur hluthöfum fjölgað um 125 frá útboðsdegi.

Bankasýslan birtir eftirfarandi samanburð á hluthafalista Íslandsbanka þann 11. apríl og niðurstöðu útboðsins á heimasíðu sinni:

  • 25 fjárfestar hafi aukið við eignarhlut sinn. Viðkomandi aðilar keyptu samtals 29,1% af útboðinu sem samsvarar 6,5% af heildarhlutafé bankans. Samtals eignarhlutur þessara aðila samkvæmt hlutaskrá 11. apríl nemur 28,8% af heildar hlutafé bankans.
  • 87 fjárfestar séu með óbreyttan eignarhlut. Viðkomandi aðilar keyptu samtals 25,3% af útboðinu sem samsvarar 5,7% af heildar hlutafé bankans. Samtals eignarhlutur þessara aðila samkvæmt hlutaskrá 11. apríl nemur 10,1% af heildar hlutafé bankans.
  • 34 fjárfestar hafi minnkað eignarhlut sinn að hluta. Viðkomandi aðilar keyptu samtals 23,3% af útboðinu sem samsvarar 5,2% af heildarhlutafé bankans. Samtals eignarhlutur þessara aðila samkvæmt hlutaskrá 11. apríl nemur 4,1% af heildar hlutafé bankans.
  • 60 fjárfestar birtast ekk á hluthafalista sem getur skýrst af því að viðkomandi varslar hluti á safnreikningi, fjármagnar hluti hjá fjármálastofnun, er eignastýringaraðili eða vegna sölu viðkomandi aðila. Viðkomandi aðilar keyptu samtals 22,3% af útboðinu sem samsvarar 5,0% af heildar hlutafé bankans.