Græn endureisn er yfirskrift fundar Samorku sem hefst klukkan eitt í dag. Meðal þeirra sem koma fram á fundinum eru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Á fundinum verður meðal annars velt upp hvað felist í hugsanlegri grænni endurreisn efnahagslífsins eftir COVID-19 heimsfaraldurinn. Hver eru helstu tækifærin og hverjar eru áskoranirnar?

Fundurinn er byggður upp á stutttum erindum, viðtalsbrotum við fólk í atvinnulífinu og pallborðsumræðum. Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Einkenni kórónukreppunnar – Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA
  • Lykillinn að grænni endurreisn – Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku
  • Pallborðsumræður: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.

Á fundinum verða einnig birt viðtalsbrot þar sem rætt verður við eftirfarandi:

  • Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar
  • Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra
  • Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets
  • Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskóla Íslands
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
  • Sigurður Markússon, nýsköpunarstjóri hjá Landsvirkjun
  • Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku