Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun um að meginvextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur og verða nú 1,25%.

Klukkan 9:30 hefst blaðamannafundur þar sem Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar, yfirlýsingunni og efni Peningamála.

Peningastefnunefndar telur að verðbólga muni haldast yfir 4% út árið en verði komin í markmið á seinni hluta næsta árs. Þó telur sagði hún að almennur verðbólguþrýstingur virðist fara minnkandi, „einkum ef litið er til undirliggjandi verðbólgu“.

Fylgjast má með streymi af fundinum í spilaranum hér að neðan: