Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Benedikt Árnason í embætti ráðuneytisstjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Benedikt tekur við af Kristjáni Skarphéðinssyni fráfarandi ráðuneytisstjóra.

Alls bárust 13 umsóknir um embættið sem var auglýst þann 1. maí sl. Hæfnisnefnd mat þrjá umsækjendur hæfasta til þess að gegna embættinu. Ráðherra boðaði í framhaldi viðkomandi til viðtals og var það mat ráðherra að Benedikt væri hæfastur umsækjenda til að taka við embætti ráðuneytisstjóra.

Benedikt lauk cand. oecon gráðu í þjóðhagfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og meistaragráðu í þjóðhagfræði frá Toronto Háskóla (e. University of Toronto) árið 1991. Árið 1993 lauk hann MBA gráðu í fjármálum og stefnumótun frá sama háskóla.

Reyndur verkefnastjóri

Í tilkynningunni segir að Benedikt búi yfir mikilli reynslu af störfum innan Stjórnarráðsins og íslenskrar stjórnsýslu. Hann hafi innsýn inn í starf ráðuneytisstjóra hvort sem litið er til reksturs, stjórnunar eða þeirra stjórnsýsluverkefna sem starfinu fylgja. Hann sé reyndur verkefnastjóri og hafi haldið vel utan um stór verkefni á vegum íslenskra stjórnavalda.

Þá kemur fram að hann hafi starfað hjá Þjóðhagsstofnun frá árinu 1988 til 1993 í hlutastarfi með námi og fullu starfi frá árinu 1993 til 1994. Árið 1994 tók hann við starfi skrifstofu- og fjármálastjóra hjá Vita- og hafnarmálastofnun og gegndi því fram til ársins 1995.

Benedikt hóf störf í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu árið 1996. Fyrst sem deildarstjóri og síðar skrifstofustjóri fjármálamarkaðar og staðgengill ráðuneytisstjóra árið 1998 og starfaði sem slíkur fram til ársins 2004.

Árið 2005 hóf Benedikt störf sem einn af aðstoðarframkvæmdastjórum Norræna fjárfestingabankans í Helsinki og svæðisstjóri fyrir Ísland. Þar starfaði hann fram til ársins 2008 en þá tók hann við starfi sem aðstoðarforstjóri Askar Capital fjárfestingabanka hf. Síðar sama ár varð Benedikt forstjóri sama fyrirtækis og starfaði sem slíku fram til ársins 2010.

Árið 2010 til 2013 var Benedikt aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins. Hann hóf störf árið 2013 í forsætisráðuneytinu sem efnahagsráðgjafi forsætisráðherra og ráðherranefnda ríkisstjórnarinnar og hefur frá árinu 2016 og fram til dagsins í dag gegnt embætti skrifstofustjóra skrifstofu stefnumála og síðar staðgengill ráðuneytisstjóra.