Bergur Einarsson, skipstjóri á Hoffelli SU, var tekjuhæstur í flokknum sjómenn og útgerðarmenn námu tekjur hans að jafnaði rúmlega 4,1 milljón króna, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út á þriðjudag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.
Næst tekjuhæsti sjó- eða útgerðarmaðurinn var Ingi Jóhann Guðmundsson framkvæmdastjóri Gjögurs með um 3,9 milljónir í mánaðarlaun að jafnaði.
Fimm tekjuhæstu sjó- og útgerðamaðurinn ársins 2018:
- Bergur Einarsson, skipstj. Hoffelli SU 4,152 milljónir króna
- Ingi Jóhann Guðmundsson, frkvstj. Gjögurs 3,906 milljónir króna
- Guðlaugur Jónsson, skipstj. Ingunni AK 3,824 milljónir króna
- Hörður Már Guðmundsson, skipstj. Sigurði VE 3,795 milljónir króna
- Gísli Runólfsson, skipstj. á Bjarna Ólafssyni 3,712 milljónir króna
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .