Búið er að undirrita kaupsamning um kaup malasíska félagsins Berjaya Land Berhad á 75% hlut Icelandair Hotels ásamt fasteignum sem tilheyra hótelrekstrinum.

Berjaya Land Berhad er skráð á markað í Malasíu og starfar meðal annars í hótelrekstri, smásölu og fasteignaþróun. Berjaya Land Berhad og tengd félög eru með um 4.000 starfsmenn og árlegar tekjur samstæðunnar nema um 1,6 milljarði bandaríkjadala. Stofnandi og stjórnarformaður Berjaya Group er Vincent Tan, sem jafnframt er eigandi velska knattspyrnuliðsins Cardiff City.

1.811 hótelherbergi eru innan Icelandair Hotels .Félagið hyggst í samstarfi við Hilton Hotels, opna nýtt 145 herbergja hótel á Landsímareitnum árið 2020. Tekjur Icelandair Hotels námu 97 milljónum dollara árið 2018 og heildarfjöldi starfmanna var 699. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagsliði (EBITDA) hótelrekstrarins var 7 milljónir dollara og leigutekjur fasteigna tengdum hótelrekstrinum námu 5 milljónum dollara.

Heildarflatarmál fasteignanna er 17.738 m2 og samanstanda af Hilton Canopy Reykjavík, Icelandair Hótel Akureyri, Icelandair Hótel Mývatni og Icelandair Hótel Héraði. Heildarvirði Icelandair Hotels og tengdra fasteigna er 136 milljónir dollara, um 17 milljarðar króna. Viðskiptin munu ganga í gegn í árslok 2019, háð  skilyrðum frá báðum aðilum.

Berjaya mun eignast 75% hlut í Icelandair Hotels en Icelandair Group þarf að halda á 25% hlut í að minnsta kosti þrjú ár. Samhliða kaupsamningnum hafa Icelandair Group og Berjaya skrifað undir kaup- og söluréttarsamninga vegna hins eftirstandandi 25% hlutar. Íslandsbanki og HVS London voru ráðgjafar Icelandair Group.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segist ánægður með niðurstöðuna í tilkynningu frá félaginu „Hinn mikli vöxtur í komum ferðamanna til landsins hefur leitt til mikillar grósku í ferðaþjónustu á Íslandi undanfarin ár. Icelandair Group hefur leikið lykilhlutverk í þeirri þróun, m.a. með því að vera leiðandi afl í uppbyggingu gæðahótela sem bjóða framúrskarandi þjónustu og sanna íslenska upplifun,“ segir Bogi Nils.

„Nú þegar Icelandair Group hyggst leggja áherslu á kjarnastarfsemi sína, alþjóðlegan flugrekstur, er það okkur mikil ánægja að fá til liðs við hótelin svo reynslumikinn alþjóðlegan fjárfesti. Kaup Berjaya á Icelandair Hotels eru í senn staðfesting á gæðum og virði félagsins og björtum framtíðarhorfum íslenskrar ferðaþjónustu. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka stjórnendum og starfsfólki Icelandair Hotels fyrir þeirra framúrskarandi starf við þróun og uppbyggingu öflugs hótelfélags sem hefur mikla þýðingu og virði fyrir íslenska ferðaþjónustu“

Þá er haft eftir Vincent Tan, stjórnarformanni Berjaya Group Berhad, að hann sjái tækifæri í að bjóða asískum ferðamönnum upp á að gista hjá Icelandair Hotels. „Kaup Berjaya 75% hlut í Icelandair Hotels eru öflug viðbót við safn þeirra 19 hótela sem samstæðan á og rekur í Malasíu, Víetnam, Japan, á Filippseyjum, Sri Lanka, Seychelles og í Bretlandi,“ segir Tan.

„Kaupin á íslenska hótelfélaginu bæta nýjum vörumerkjum og 1,811 herbergjum í fjölbreytt framboð hótela Berjaya og gera okkur kleift að bjóða núverandi jafnt sem nýjum viðskiptavinum okkar í Asíu nýja og spennandi norræna upplifun. Ég tel að fjárfestingin feli í sér mikið framtíðarvirði fyrir hótelstarfsemi samstæðunnar. Við hlökkum til þess að vinna með nýjum samstarfsaðila okkar að frekari vexti og viðgangi Icelandair Hotels.”