Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins Norðurþings var jákvæð um tæpar 309 milljónir króna samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins sem samþykktur var í vikunni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sveitarfélaginu.

Um er að ræða bestu rekstrarniðurstöðu í sögu Norðurþings. Sveitarfélagið er komið undir 150% skuldaviðmið eftirlitsnefndar sveitarfélaganna en heildarskuldir nema nú 136% af tekjum sveitarfélagsins.

Kristján Þór Magnússon segir þetta bestu niðurstöðu í sögu Norðurþings.

“Þetta er besta rekstrarniðurstaða í sögu sveitarfélagsins sem er mikið gleðiefni. Það hefur orðið mikill viðsnúningur á síðustu árum og það er bjart framundan. Hér hefur verið gríðarlegur vöxtur. Uppbygging á Bakka er nú að skila sér í fjölgun íbúa og íbúafjöldi nálgast óðum þrjú þúsund. Áætlað er að það þurfi reisa 80-100 íbúðir á svæðinu á næstu misserum.”

Rekstrarniðurstaða A-hluta sjóðs Norðurþings var jákvæð um tæpar 100 milljónir króna. Tekjur A-hluta námu 2.935.425 krónum, sem er 403 milljóna króna hækkun frá fyrra ári, og skýrist að mestu af hækkun skatttekna um tæp 18%. Rekstarniðurstaða A-hluta án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var því jákvæð um tæpar 133 milljónir króna. Í fyrra nam tapið 116 milljónum króna.

Heildartekjur A og B hluta Norðurþings námu tæpum 4 milljörðum að teknu tilliti til útjöfnunar viðskipta og viðskiptastöðu milli sveitarsjóðs og B-hluta fyrirtækja. Rekstrarkostnaður nam tæpum 3,7 milljörðum og er rekstrarniðurstaða því jákvæð um tæpar 309 milljónir króna sem er viðsnúningur upp á um ríflega 370 milljónir króna frá uppgjöri 2015.

Fjármagnstekjur umfram gjöld námu tæpum 6 milljörðum og er rekstrarniðustaða A+B hluta fyrir skatta jákvæð um tæpar 315 milljónir. Fjármagnsgjöld lækka umtalsvert á milli ára eða um 100 milljónir króna