Fyrrverandi kafteinn Pírata, og núverandi þingflokksformaður flokksins eftir að kafteinsembættið var lagt niður, Birgitta Jónsdóttir hefur staðfest að hún muni standa við fyrri orð og ekki bjóða sig fram á ný þegar kosið verður aftur. Hún segist þó hafa fundið fyrir stuðningi þvert á flokka um að bjóða sig áfram fram.

,,Ég hef lofað sjálfri mér því að hætta eftir þetta kjörtímabil, óháð lengd þess. Það er ekkert sem getur fengið mig til að skipta um skoðun," segir Birgitta í yfirlýsingu á facebook síðu sinni.

,,Ég er snortin af þeirri bylgju hvattningar að fara fram aftur sem ég hef fundið fyrir þvert á flokka sem og í grasrót minni. Ástæða þess að ég hef ekki viljað koma með þessa yfirlýsingu strax er einfaldlega vegna þess að þessu kjörtímabili er ekki lokið, þrátt fyrir að núverandi stjórn sé fallinn.

En það hefur verið ákall um að ég svari skýrt og afgerandi, bæði meðal félagsmanna sem og meðal okkar pólitísku andstæðinga.
Ég vil ekki halda fólki í óþarfa óvissu. Ég mun að sjálfsögðu þrátt fyrir að vera ekki í framboði í næstu kosningum, halda áfram að berjast fyrir réttlátara samfélagi og þeim breytingum sem ég hef lagt þunga á að ná í gegn hérlendis sem og erlendis."