Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt greinargerð um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta. Samkvæmt lögum um gjaldeyrismál ber ráðherra að gera Alþingi grein fyrir framgangi áætlunar um losun takmarkana á fjármagnshreyfingum milli landa og gjaldeyrisviðskiptum á sex mánaða fresti þar til slíkum takmörkunum verður endanlega aflétt.
Gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands
Í júní 2016 hélt Seðlabanki Íslands gjaldeyrisútboð þar sem aflandskrónueigendum var gert kleift að selja krónueignir sínar gegn greiðslu reiðufjár í erlendum gjaldeyri.
Útboðið, sem var liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta frá júní 2015, var hið síðasta í röð útboða sem haldin hafa verið frá júní 2011, en samkvæmt áætlun um losun hafta var áformað að það ætti sér stað áður en stjórnvöld hæfu losun hafta á einstaklinga og fyrirtæki.
Losun í tveimur skrefum
Hinn 11. október 2016 samþykkti Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingu á lögum um gjaldeyrismál. Með lögfestingu frumvarpsins, sem er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta frá júní 2015, eru afgerandi skref stigin í átt að fullri losun fjármagnshafta.
Þær takmarkanir sem gilda um einstaklinga og lögaðila, innlenda sem erlenda, verða losaðar í tveimur skrefum; annars vegar við gildistöku laganna þann 21. október og hins vegar í byrjun árs 2017.
Bein fjárfesting innlendra aðila ótakmörkuð
Við gildistöku laganna varð bein erlend fjárfesting innlendra aðila ótakmörkuð en háð staðfestingu Seðlabanka Íslands. Jafnframt varð fjárfesting í fjármálagerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri og fyrirfram- og uppgreiðsla erlendra lána frjáls upp að 30 milljónir króna.
Þá er einstaklingum nú heimilt að kaupa eina fasteign erlendis á hverju almanaksári og dregið er úr skilaskyldu innlendra aðila á erlendum gjaldeyri. Í upphafi árs 2017 verður framangreint fjárhæðarmark hækkað úr 30 milljónum króna í 100 milljónir. Innstæðuflutningar frá innlendum til erlendra fjármálastofnana verður heimilaður upp að sama fjárhæðarhámarki.
Ákvarðanir í samræmi við ráðleggingar AGS
Vinnu við losun fjármagnshafta miðar samkvæmt áætlunum stjórnvalda frá júní 2015 en full losun fjármagnshafta er ótímasett. Áætlanir stjórnvalda eru í samræmi við ráðleggingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um samþætta þriggja skrefa nálgun við losun hafta.
Sjóðurinn leggur til að samfara þeim skrefum sem nú eru tekin í átt að fullri losun fjármagnshafta verði eftirlit og yfirsýn stjórnvalda með utanríkisviðskiptum og fjármálamarkaði styrkt.
Full losun fjármagnshafta og tímasetning hennar er m.a háð því að jafnvægi sé í hlutfallslegri samsetningu innlendra og erlendra eigna, að útflæðisþrýstingur sé viðráðanlegur og stjórnvöld hafi náð að þróa viðeigandi þjóðhagsvarúðartæki.
Greinargerðina má nálgast hér .