Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var gestur á stjórnarfundi Félags atvinnurekenda í dag. Fundurinn markaði tímamót, enda tvöþúsundasti fundur stjórnar félagsins, sem starfað hefur í rúm 90 ár. Þetta var jafnframt fyrsti fundur nýrrar stjórnar félagsins, sem kjörin var á aðalfundi í síðasta mánuði. FA greinir frá þessu á vef sínum .

Ráðherra ræddi við stjórnarmenn um ýmis mál sem FA hefur tekið upp gagnvart stjórnvöldum. Á meðal umræðuefna voru staðan á vinnumarkaði, álagning fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði og þróun tryggingagjaldsins undanfarin ár.

Regluverk einfaldað

Stjórnarmenn FA hvöttu ráðherra til að fylgja eftir eftirlitsgjaldaskýrslu FA frá 2017, en hún er að sögn FA í raun leiðarvísir um það hvernig má tryggja gagnkvæma hagsmuni ríkisins og fyrirtækja af því að eftirlitsgjöld séu lögmæt og sanngjörn, þannig að forðast megi málsóknir á hendur ríkinu.

Líflegar umræður urðu um einföldun regluverks atvinnulífsins og boðaði ráðherra ýmsar jákvæðar nýjungar, til dæmis stóraukið framboð rafrænnar opinberrar þjónustu og að fyrirtæki, sem hefja starfsemi, séu fremur skyldug til að tilkynna þá starfsemi til stjórnvalda en að þau þurfi að sækja um leyfi fyrir starfseminni fyrirfram með tilheyrandi skriffinnsku. Frumvarp þessa efnis var boðað árið 2016 en náði ekki fram að ganga.

Þá var skipst á skoðunum um samkeppni ríkisfyrirtækja á borð við Isavia, Íslandspóst og RÚV við einkafyrirtæki og rætt vítt og breitt um tolla á matvörum.