Bjarni Már Gylfason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi RioTinto á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík. Bjarni Már er hagfræðingur að mennt og hefur síðan 2005 verið hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Þar hefur hann unnið að kynningu, miðlun og greiningu á starfsumhverfi iðnaðar á Íslandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Áður en Samtök álframleiðenda voru formlega stofnuð árið 2010 sinnti Bjarni Már sameiginlegu starfi þeirra innan Samtaka iðnaðarins og þekkir vel til starfsskilyrða áliðnaðarins á Íslandi. Hann kenndi hagfræði og skyldar greinar við Verzlunarskóla Íslands 2000 til 2005 og var blaðamaður á Viðskiptablaðinu og DV 1998 til 2000.

Hjá RioTinto mun hann bera ábyrgð á samskipta- og kynningarmálum, almannatengslum, samskiptum við hagsmunaaðila auk stefnumótunar í sjálfbærri þróun og samfélagslegri ábyrgð að því er kemur fram í tilkynningunni.

Bjarni Már er kvæntur Jóhönnu Vernharðsdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau fjögur börn. Hann kemur til starfa nú um mánaðarmótin.